Guð minn góður hvað það var gaman! Ég vil þakka öllum fyrir frábæra daga (og langt fram á nótt!). Nú fara væntanlega myndirnar að streyma inn á netið og kemur fyrsti skammtur hér:
Þið getið sett inn myndir á myndasafnið hér á síðunni ef þið viljið, sett link í myndir sem athugasemd hér fyrir neðan eða senda mér á trigger@pjus.is og ég bæti því inn.
Það er líka enn hægt að leggja inn fyrir gjöfinni (sjá neðar!) eða þangað til á morgun, safnast þegar saman kemur! Það eru ekki nema 48% búin greiða.
Svo vil ég þakka henni Dagnýju sem sá um að græja þennan flotta vef og svo "nefndin":
Benedikt Hálfdánarson (AB), benedikt@internet.is
Guðmundur Freyr Sveinsson (F), gudmundur@vatnsendaskoli.is
Eva Björk Valdimarsdóttir (G), ebv2@hi.is
Elva Ásgeirsdóttir (TU), elva78@gmail.com
Sólveig Pétursdóttir (TU), solveigpe@gmail.com
Auður Karen Gunnlaugsdóttir (VX), audurkaren@gmail.com
og
Tryggvi R. Jónsson (VX), trigger@pjus.is
.... þakka kærlega fyrir!
Kveðja
Tryggvi
Eftir óvissuferðina á sunnudaginn (15. júní) verður sameiginlegt partý fyrir alla bekkina úr útskriftarárganginum okkar í skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. Húsið opnar kl. 21 og verður rukkað smá klink við innganginn (fyrir leigu á salnum).
Þarna gefst þeim sem eru svo óheppnir að komast ekki í óvissuferðina, kjörið tækifæri á hitta hina úr árganginum (sem verða að sjálfsögðu í partýinu).
Allir makar eru að sjálfsögðu velkomnir.
Hver og einn kemur með sitt bland og bús, skemmtanagleðina og allar gömlu sögurnar frá árunum okkar í MA.
Ef einhverjar spurningar vakna um óvissuferðina eða partýið er ykkur velkomið að hringja í okkur og fá upplýsingar
Kveðja
Auður Karen (VX) s: 695-2602
Elva (TU) s: 866-4459
Sólveig (TU) s: 847-0030
Ákveðið hefur verið að styrkja skólann og nemendur til kaupa á nýjum hátölurum í Kvosina enda þeir gömlu orðnir aldraðir og annar þeirra ónýtur. Mun þetta nýtast nemendum og öðrum við að njóta listræns efnis af öllum gerðum í Kvosinni. Við viljum stilla upphæðinni í hóf og er framlag hvers 2.500kr. Best er að greiða inn á reikning nr: 0372-13-110903 (kt: 191177-3989) og senda kvittun með nafni afmælisstúdents á netfangið gjof@ma98.net til staðfestingar.
Nú er bara að taka frá pening áður en hann hverfur allur á barnum í Höllinni 16. júní og leggja inn ;-)
Kveðja
Nefndin
Staðsetningar bekkjarpartýjanna:
F - Lönguhlíð 15 hjá Jóa Jóns. - tengiliður Guðmundur Freyr gudmundur@vatnsendaskoli.is
G - Í sumarbústað í landi Öngulstaða í Eyjafjarðarsveit -tengiliður Eva Björk ebv2@hi.is
TU og VX - Helgamagrastræti 27 hjá Villa Stebba. -tengiliður TU: Elva og Sólveig elva78@gmail.com / solveigpe@gmail.com og VX: Auður Karen audurkaren@internet.is
AB - ekki komið á hreint, fara sennilega út að borða saman. - tengiliður Benedikt benedikt@internet.is
Eru ekki allir í stuði??
Óvissuferðin byrjar sunnud. 15. júní kl. 12:00 STUNDVÍSLEGA við aðalinnganginn á Hólum í MA. Boðið verður upp frábæra skemmtun, mat og drykk. Skrallið kostar 3500 kr. á mann (special price for you my friend í allri verðbólgunni).
Fólk er beðið um að vera í þægilegum skóbúnaði og haga fatnaði eftir veðri. Munið að pakka SUNDFÖTUNUM!!! Fólki er bent á að taka með sér aukasopa (áfengan/óáfengan) til að hafa yfir daginn.
Hlökkum til að sjá ykkur!!
Nefndin
ps. Enn er hægt að skrá sig á ovissuferd08@gmail.com en nú fer hver að verða síðastur þar sem fjöldi plássa hefur verið takmarkaður.
25 ára stúdentar vilja minna á skráninguna vegna 16. júní. Nú eru bara þrjár vikur til stefnu og allt að gerast!
Kveðja
Nefndin.
Sunnudaginn 15. júní verður óvissuferð fyrir alla bekkina og mun hún hefjast við MA stundvíslega kl. 12:00. Boðið verður upp á skemmtun af ýmsu tagi og ættu allir að geta haft gaman af. Við þurfum að vita hverjir ætla að mæta og biðjum við ykkur að skrá ykkur á ovissuferd08@gmail.com fyrir mánudaginn 2. júní.
Nánari upplýsingar um verð og fleira sem máli skiptir verða sendar út þegar nær dregur.
Koma svo gott fólk. Allir að skrá sig :)
Kv.
Auður Karen, Elva og Sólveig
Nefndin hefur lagt í ráðabrugg fyrir óvissuferð á sunnudaginn 15. júní.
Haraldur Ingvi Pétursson (F) hjá Greiningardeild Kaupþings var gestur Sindra Sindrasonar í lok dags á Vísi. Kíkjum á Halla.
Bréf 25 ára stúdenta til afmælisárganga v/ MA hátíðar 16.júní 2008
Kæri jubilant
Við óskum þér og samstúdentum þínum til hamingju með væntanlegt stúdentsafmæli í sumar. Undirbúningsnefnd 25 ára stúdenta vill með þessu bréfi minna á MA hátíðina í Íþróttahöllinni á Akureyri þann 16.júní næstkomandi. Til afmælisárganga teljast þeir sem eiga eins, fimm, tíu, fimmtán, tuttugu, tuttugu og fimm, þrjátíu, fjörutíu, fimmtíu, sextíu og sjötíu ára stúdentsafmæli.
Við vonum að árgangur þinn taki virkan þátt í að hátíðin megi verða minnisstæð og skemmtileg og biðjum við þig um að að vera milliliður í að koma boðum áleiðis til samstúdenta þinna.
Dagskráin verður með hefðbundnu sniði og er markmið okkar að kvöldið verði umfram allt minnisstætt sem og skemmtilegt. Hefð hefur skapast fyrir því að afmælisárgangar komi með skemmtiatriði sem tekur 5-7 mínútur í flutningi og biðjum við ykkur að vera í sambandi við Friðfinn Hermannsson (friðfinnur.hermannsson@capacent.is) fulltrúa 25 ára stúdenta í veislunefndinni fyrir 1. júní varðandi ykkar framlag til hátíðarnnar. Ekki er beðið um ræður, þar sem hátíðarræða kvöldsins er í höndum 25 ára stúdenta.
Hátíðin mun hefjast með fordrykk í anddyri Íþróttahallarinnar um kl.18:00 og síðan verður þríréttað glæsilegt borðhald. Á dagskrá verður söngur, skemmtiatriði og að venju munu eins árs stúdentar fá gólfið um miðnætti til að kasta hvítu kollunum.
Dansað verður til kl. 03:00 við undirleik hljómsveitarinnar Í svörtum fötum . Reynt er að stilla miðaverði á hátíðina í hóf og hefur verið ákveðið 8700 kr. fyrir aðra en 1.árs stúdenta. Miðverð til þeirra er 4.700 kr.Ef aðeins er keyptur miði á dansleik kostar miðinn 3000 kr..-
Matseðill hátíðarinnar ásamt dagskrá verður birt á heimasíðu okkar
Í ár verður miðasala í forsölu í gegnum vef Bautans; Bautinn.is og er hún að hefjast.
Netföng nefndarmanna eru/verða á heimasíðunni okkar.
Með þessu bréfi viljum við biðja þig um að hvetja sem flesta úr þínum árgangi að koma á hátíðina og vonum að þið eigið saman ógleymanlega daga á Akureyri.
Hlökkum til að sjá ykkur! Undirbúningshópur 25 ára stúdenta
Já það er víst búið að gefa skólanum klukku svo okkur vantar hugmynd að gjöf sem árgangurinn gæti gefið skólanum. Síðast var það skjávarpi í Kvosina. Hugmyndir?
Í dag fór vefurinn í loftið, hérna munum við birta fréttir af því hvernig gengur að skipuleggja starfið. Ef þú hefur áhuga á því að setja inn efni á vefinn okkar (fréttir og myndir), smelltu þá á nýskráning og búðu til notanda og lykilorð. Síðan færðu upplýsingar sendar í póstinum.
Þó þú hafir kannski ekki endilega áhuga á að setja inn fréttir þá viljum við í öllum bænum biðja þig að fylla út viðtalið (það þarf enga skráningu í það, bara fylla út formið) svo við fáum einhverjar meiri upplýsingar um það hvar þú ert stödd/staddur í lífinu.
Þeir sem eru að skipuleggja eitthvað bekkjarstarf eru beðnir um að senda póst á ma98@ma98.net og segja okkur frá því hverjir eru yfir þeim hópi, svo bekkjarfélagar geti haft samband beint. Best væri ef þeir sem eru að skipuleggja myndu bara búa til notanda og setja inn fréttir til bekkjarfélaganna hér.
Vonandi nýtist vefurinn okkur vel - það er jú heljarstórt partý framundan! :)
Við erum að komast í gang, enda innan við 4 mánuðir í 10 ára afmælið. Hérna ætlum við að reyna að rifja upp gamla tíma, endurnýja kynnin að einhverju leyti og deila slúðrinu um hvert annað, öllu því sem við höfum ekki þorað að segja frá öll þessi ár.
Það verður fróðlegt að vita hver er orðin(n) ríkust/astur af fjármunum, börnum eða andlegum eiginleikum.
Svo er stóra málið, hvað er nú minnistæðast frá þeim fjórum (ca) árum sem við áttum saman í Menntaskólanum á Akureyri... er það algebran? ....algewho?!