Eftir óvissuferðina á sunnudaginn (15. júní) verður sameiginlegt partý fyrir alla bekkina úr útskriftarárganginum okkar í skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. Húsið opnar kl. 21 og verður rukkað smá klink við innganginn (fyrir leigu á salnum).
Þarna gefst þeim sem eru svo óheppnir að komast ekki í óvissuferðina, kjörið tækifæri á hitta hina úr árganginum (sem verða að sjálfsögðu í partýinu).
Allir makar eru að sjálfsögðu velkomnir.
Hver og einn kemur með sitt bland og bús, skemmtanagleðina og allar gömlu sögurnar frá árunum okkar í MA.
Ef einhverjar spurningar vakna um óvissuferðina eða partýið er ykkur velkomið að hringja í okkur og fá upplýsingar
Kveðja
Auður Karen (VX) s: 695-2602
Elva (TU) s: 866-4459
Sólveig (TU) s: 847-0030
Athugasemdir (4)
Dagný:
...og hvað.. var stuð?? hvar er gossið? :)
16.06.08 15:48
Tryggvi R. Jonsson:
Það var sko stuð, partýið og óvissuferðin heppnuðust alveg gríðarlega vel og eiga þær Auður Karen, Elva og Sólveig mikið hrós skilið fyrir það! Það er alveg ljóst að Tópas-sprautur eru eitthvað sem er komið til að vera!
16.06.08 17:12
Valdís:
Þessir dagar eru búnir að vera alveg geggjaðir. Óvissuferðin var frábær, bekkjarpartýið frábært líka og sextándinn í höllinni var stórskemmtilegur.
Ég er reyndar með tvö kælibox í skottinu á búsbílnum. Geta eigendur þeirra gefið sig fram?
17.06.08 15:53
Atli:
Takk fyrir helgina
18.06.08 11:13