Nafn:
Þóra Björg Sigurðardóttir
Netfang:
thorsi@hi.is
Fæðingardagur:
31. ágúst 1978
Fjölskylduhagir:
Ég bý með Jóni Örvari (Ödda) og við eigum sex ára stúlku sem heitir Sigurrós.
Bekkur í MA:
F
Hvað er að frétta?
Allt gott að frétta. Ég var að verja MA-ritgerðina mína í heimspeki frá HÍ í síðustu viku en er tiltölulega nýkomin heim frá Utrecht í Hollandi þar sem ég var í skiptinámi. Þar áður bjuggum við í Edinborg í Skotlandi þar sem Jón Örvar lagði stund á sitt ma-nám. Þessa dagana búum við í Borgarfirðinum og hugum að sveitastörfunum:)
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum? Það er nú margt minnistætt. Fremstafellsferðirnar heim til Áslaugar og margs konar bekkjaruppákomur. Alls konar brall í stjórninni og stjórnarandstöðunni:) Og fullt af frábæru fólki. Hlakka til að sjá ykkur á sextándanum!
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
jájájá