Nafn:
Hjalti Valþórsson
Netfang:
hjaltival@simnet.is
Fæðingardagur:
30.júlí 1978
Fjölskylduhagir:
Giftist Þorbjörgu minni 2004 og eigum við hann Hilmi Hrafn sem er eins og hálfs árs. Búum í Grafarvogi.
Bekkur í MA:
VX
Hvað er að frétta?
Fór í atvinnuflugnám eftir MA. Gekk erfiðlega að fá vinnu við flug og fór að læra viðskiptafræði í HÍ. Tók hlé frá því og vann við ýmislegt þar til ég tók upp þráðinn aftur en þá í Hagfræði. Starfaði svo eitt ár sem flugkennari í Reykjavík þar til ég var ráðinn til Icelandair vorið 2006. Hef starfað þar síðan með einu hléi þó.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
- Kynning á eðlisfræðibraut fyrir nýnemum. Ég var fenginn í það og var ég aðeins búinn að "hressa" upp á útlitið þegar ég mætti. Má þar nefna brjóstvasa fullan af reiknivélum og annar fullan af pennum, reglustikum og gráðubogum, ónýt gleraugu lagfærð með plástrum og eitthvað fleira sniðugt. Ég er ekkert að orðlengja þetta en x-bekkurinn var óvenju lítill næsta haust.
- Útvarpsþátturinn hjaltasögur. Einar verstu tvær klukkustundir sem ég man eftir.
- Þögul 45 mínútna stuttmynd sem hafði tilil sem ekki verður birtur hér.
- Auglýsingastríð sem hafði meðal annars áhrif á úrslit herra MA.
- Jólasaga Níelsar um gistiheimilið geim. Ég treysti mér ekki til að útskýra söguna í stuttu máli.
- Harðvítugar landamæradeilur við Villa Stebba.
- Brúnn leðursixpensari. Einu sinni týndi ég honum og hafði hann verið týndur í amk viku þegar ég var á göngu á Akureyri. Sá ég þá út undan mér eitthvað kunnuglegt og hélt ég að þar væri mannvera á ferð. Þegar ég leit upp var þar tæplega mannhæðarhár staur með húfuna ofaná. Seinna komst ég að því að villi naglbítur hefði komið henni þar fyrir og þótt það öruggur staður.
- Þegar ég gerði verslunareiganda á markaði í Cancun svo svívirðilegt tilboð að ég varð að flýja undan fljúgandi skóm hans.
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Já. Kem 16.