image

image

image

Hildur Friðriksdóttir

Nafn:
Hildur Friðriksdóttir

Netfang:
hildur@kaffiheimur.is

Fæðingardagur:
13. júní 1977

Fjölskylduhagir:
Gift, tveggja barna móðir og fékk eina stjúpdóttur með í kaupbæti. Svo má ekki gleyma kettinum Friðfinni.

Bekkur í MA:
F

Hvað er að frétta?
Hef reynt að gera bara skemmtilega hluti eftir stúdent og það hefur gengið bara alveg bærilega. Ferðaðist, skellti mér svo í nokkur ár í ópraktískt hugvísindanám og hef seinustu 4 árin haft atvinnu af því að fást við mjög svo stórt áhugamál í lífi mínu sem er kaffi og allt sem því viðkemur. Á praktíska námið ennþá eftir og er að vinna í því að hafa mig í það en langar samt eiginlega meira til að skreppa með fjölskylduna til Suður-Ameríku og týna kaffibaunir svona eins og í eitt til tvö ár . . .

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Vá hvar á maður að byrja og hvar á maður að enda?
Ég er að hugsa um að geyma þessa upprifjun fyrir partýið!