image

image

image

Gústav Ásbjörnsson

Nafn:
Gústav Ásbjörnsson

Netfang:
gustavma@simnet.is

Fæðingardagur:
15. apríl 1978

Fjölskylduhagir:
Giftur síðan í apríl síðastliðnum ljóshærðri stúlku úr Landeyjunum, við eigum saman þriggja ára strák sem hefur háralitinn frá móður sinni og nefið frá mér.

Bekkur í MA:
F

Hvað er að frétta?
Frá útskrift og fram til ársins 2003 var ég í vinnu hér og þar, skóla og meiri skóla, hafði ýmislegt upp úr krafsinu, BS gráðu, maka, örlítið vit og meira í þeim dúr. Hef frá sumrinu 2003 unnið hjá Landgræðslu ríkisins hingað og þangað um landið en er nú í Gunnarsholti, starfið felur í sér skrifstofuvinnu í vondu veðri og útiveru í góðu auk slatta af ferðalögum hingað og þangað, mest innanlands og aðeins út fyrir landssteinana. Fjölskyldan býr á Hvolsvelli og hefur það bara fínt á landsbyggðinni, við höfum okkar fjölskylduhestasport og jeppa þannig að við komumst á fjöll svona stundum.

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Þetta er nokkuð snúin spurning þar sem skemmtilegustu stundirnar eru ekki endilega þær minnisstæðustu sbr. útskriftarferðin og skálaferðinar. Ég man þó mjög vel eftir ákveðinni myndatöku í gamla skóla, samansaumuðum fiski, lífinu á vistinni, stórkostlegum búningum sem litu út eins og ég hefði saumað þá sjálfur ofl.

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Enn ekki ákveðið, en það verður reynt að koma því við.

Blogg/vefur:
Nei, en ég á gsm og er í símaskrá