Sunnudaginn 15. júní verður óvissuferð fyrir alla bekkina og mun hún hefjast við MA stundvíslega kl. 12:00. Boðið verður upp á skemmtun af ýmsu tagi og ættu allir að geta haft gaman af. Við þurfum að vita hverjir ætla að mæta og biðjum við ykkur að skrá ykkur á ovissuferd08@gmail.com fyrir mánudaginn 2. júní.
Nánari upplýsingar um verð og fleira sem máli skiptir verða sendar út þegar nær dregur.
Koma svo gott fólk. Allir að skrá sig :)
Kv.
Auður Karen, Elva og Sólveig
Athugasemdir (4)
Tryggvi R. Jónsson:
Það á bara að byrja snemma! Verður svo veðbanki um hverjir hafa "misst meðvitund" klukkan 16:00, 20:00 ;-) ?
22.05.08 09:22
Auður Jónasdóttir:
koma nánari upplýsingarnar fyrir mánudag?
30.05.08 09:38
Jóhanna Jakobsdóttir:
Jæja, hvernig er svo mætingin? Og spennan eykst...
02.06.08 17:36
Tryggvi R. Jonsson:
Já... segi það... er fjölmæting?
02.06.08 19:42