Nafn:
Örvar Gunnarsson
Netfang:
orvarg@gmail.com
Fæðingardagur:
17.08.1978
Fjölskylduhagir:
Shingle (með hléum; ógiftur og engin börn). Á ekki einu sinni kött eða hamstur.
Bekkur í MA:
TU
Hvað er að frétta?
Elti Hr. Hafberg í læknisfræði eftir útskrift. Hef reynt að elta hann æ síðan en hann hefur hins vegar yfirgefið mig og er farinn að reyna að lækna börn. Ég hef hins vegar verið að reyna að lækna gamalt fólk á lyflækningasviði LSH undanfarin ár. Hef ekki ennþá fundið lækningu við ellinni en hver veit... Næsta skref er sérnám og stefnir helst í að það verði í USA. Er með nokkra staði sem ég gæti farið á en á erfitt með að ákveða mig. Kannski að maður bíði eftir því að að sjá hvert Hr. Hafberg fer og elti hann áfram...
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Verulega margt sem er minnisstætt - líklega ekki allt sem má skrifa hér. Frá fyrsta árinu er það nr 1 Hr. Róbert S. Reynisson sem að bjargaði því ári. Ýmsar áhugaverðar umræður sem áttu sér stað með honum. Svo á 2. ári var það hinn ódauðlegi T bekkur (besti bekkurinn) sem var einstaklega vel mannaður þangað til næstum allir féllu í stærðfræði, en það var líklega á 3. ári reyndar og varð þá að TU bekknum (líka besti bekkurinn) á 4. ári. Í 2. bekk og reyndar áfram þá var það t.d. "Boyz at the back" sem héldu uppi fjörinu og hjálpuðu samnemendum sínum við lærdóminn. Mikill metnaður a.ö.l. annars í þeirri grúppu lagður í það að læra sem minnst og líkl. hálfgerð keppni í því sem endaði eins og áður segir með verulegri fækkun í bekknum. Ýmsar tilraunir voru gerðar til að ná hinu svokallaða "Doddastigi 5" sem að endaði tiltölulega illa fyrir Dabba sem var óheppilega metnaðarfullur í að ná "Doddastiginu" á þeim degi. Sykursjokk á föstudögum e. hádegi með Dabba var alltaf hressandi. Raggi í stærðfræði hjá Ebba psycho að teikna í rúðustrikuðu bókina sína - skilaði góðum árangri. Stelpurnar t.d. Sólveig og Elva að stríða mér og hinum strákunum - mjög erfitt en er búinn að jafna mig þokkalega eftir það. Freydís sem ef ég man rétt "gat ekki andað fyrir lofti". Gott útiskokk með Dodda í skálaferð sem endaði í hringferð um landið liggur við (a.m.k í minningunni - langt). StefSæm og Ásmundur sem voru stórkostlegir kennarar og gaman að fá að kveðja Ásmund á síðasta árinu hans.
Well... það var auðvitað miklu fleira sem að er ekki pláss til að skrifa hér en allavegana þá voru þetta óendanlega góðir tímar sem verða bara betri í minningunni.
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Að sjálfsögðu