image

image

image

Kjartan Sverrisson

Nafn:
Kjartan Sverrisson

Netfang:
kjartansverrisson@gmail.com

Fæðingardagur:
5. jan 1978

Fjölskylduhagir:
Látum okkur sjá. Kvæntur henni Berglindi minni síðan 2004. Við eigum tvö börn, eina stelpu sem verður þriggja ára í haust og tæplega 6 mánaða gamlan strák.

Bekkur í MA:
VX

Hvað er að frétta?
Hvað viltu vita? Ég vinn hjá Eskli ehf og er þessa stundina á kafi í MSc námi við Háskólann í Liverpool (ég ætti að vera að læra núna). Ef vel gengur þá útskrifast ég þaðan næsta sumar með eitthvað plagg um að ég kunni nota tölvur.

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Djíí, það er svo margt. Söngsalirnir, skálaferðirnar (og maturinn sem ég eldaði fyrir ykkur öll þar), skíðaferðirnar í Hlíðarfjalli og hvað vorin voru alltaf svakalega góð fyrir norðan.
Ég man alltaf sérstaklega eftir því vorið sem við útskrifuðumst að þá var búin að vera bongó blíða í nokkrar vikur þegar ég er að keyra suður og eftir því sem sunnar dregur sé ég dökkan skýjabakka sem passaði upp á að ég sæi ekki sól í nokkrar vikur eftir að ég kom suður *bömmer*.

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Já, ef ég mögulega get.

Blogg/vefur:
http://www.kjartansverrisson.com