image

image

image

Jóhanna Jakobsdóttir

Nafn:
Jóhanna Jakobsdóttir

Netfang:
johanna@jakobsdottir.com

Fæðingardagur:
11. september 1978

Fjölskylduhagir:
Gift Jóhanni Tómasi (aka J-To idh) og við eigum tvo gaura, Jakob Ragnar (2004) og Hannes Helga (2006). Svo eigum við alltaf ofurkisuna hana Myllu Willis (2002). Þó hvorki barn né gæludýr á leiðinni.

Bekkur í MA:
TU

Hvað er að frétta?
Hvað er að frétta? Bara allt glimrandi. Síðastliðin 5 ár höfum við búið í kúluðustu borg Kanada, nema hvað. Montreal er borg syndanna og öfganna þar sem sumrin eru sjóðheit og klístruð en vetrarkuldinn er svo skítslegur að margir heyja lífsbaráttuna með góðri hjálp marjúana en aðrir troða bara í sig nógu af frönskum með osti og heitri, brúnni sósu. Samt eru allir rosalega mjóir
brennslan eykst náttúrulega svakalega í svona kulda sko og auðvitað vita allir að franskar konur fitna ekki.
Nám: B.A. í ensku/fjölmiðlafræði, þýðingafræðinám, frönskunám.
Störf: Ritari, ritstjóri, fararstjóri, þýðandi og núna er ég nýbyrjuð sem gæðastjóri íslenskra þýðinga fyrir Gúgúl.
Annað: Tala enn jafn mikið, ef ekki meira .

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Ég var einmitt að kíkja Carmínu í gær til koma af stað nostalgíunni. Þá rifjuðust upp fyrir mér slúðurstundir á öftustu bekkjunum í stæ og eðl, þar sem Örvar stóð sig hvað best og gilti einu hvort sögurnar voru sannar eða ekki. Dabbi kom líka sterkur inn með sitt Bowie-æði sem ég er rétt farin að skilja núna.
Kennararnir voru náttúrulega margir skemmtilegir. Það var náttúrulega stórkostlegt sjokk þegar Stefán Þór stökk upp á borð í fyrsta íslenskutímanum sem hann kenndi okkur. Herdís þýskukennari, brúnaþung í reiðstígvélum, vá hvað maður var nú skíthræddur við hana. Þórir með frumurassinn o.s.frv. Svo finnst mér pínu fyndið að hugsa til þess að við höfum í alvöru verið að spá í að safna fyrir hjóli handa Ásmundi.

Þegar Berglind ældi á gólfið í fyrsta tíma í ensku og allir voru að spá hvort þetta væri nú Cheerios eða kornflex nema Þórdís Bernharðs sem kom askvaðandi inn og sagðist vinna á elliheimili, hún væri þaulvön öllu ógeðslegu. Snarari handtök hafa sjaldnast sést.
Færeyjaferðin var frábær og átti Rúsdrekkasøla Landsins sinn þátt í því, svo og hvalspikið. Gleymist líka seint pítsustaðurinn sem við fórum á, þar sem maður var látinn horfa glorhungraður á tilbúnar pítsurnar upp á einhverjum stalli og svo kom gosið þegar allir voru búnir að borða.

Svo náttúrulega bara almennt fliss og blaður með stelpunum.

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Ég er nú ekki búin að kaupa miðann en auðvitað læt ég mig ekki vanta ef stefnir í stuð.

Blogg/vefur:
Ekkert slíkt en er frekar virk (les: sjúk) á fésbókinni.