Nafn:
Jens Kristinn Gíslason
Netfang:
jenskristinn@hotmail.com
Fæðingardagur:
24. nóv 1978
Fjölskylduhagir:
Í sambúð með frönskukennara við MA (nei, ekki Örn Þór!). Við erum barnlaus, en bara í nokkrar vikur í viðbót (ef allt gengur vel)
Bekkur í MA:
VX
Hvað er að frétta?
Eftir MA var ég sjóliði á finnsku herskipi einn vetur áður en ég byrjaði í rafmagnsverkfræði við HÍ. Ég bjó svo einn vetur í frönsku Ölpunum áður en ég fór í mastersnám til Finnlands. Vinn núna hjá VST-Rafteikningu á Akureyri.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Það hlýtur að vera verkefni í eðlisfræði um "Ferðina til Tunglsins" eftir Jules Verne. Við Marinó áttum að halda fyrirlestur um hvernig sagan passaði við eðlisfræðilögmálin. Í staðinn vorum við með "show" þar sem við skutum teiknibólu úr heimasmíðaðri fallbyssu af heimasmíðuðu jarðlíkani í tunglið sem var blaðra með mynd af Tryggva (tunglbúa, e. "lunatic"). Stofan fylltist af reyk og við fengum bara fínustu einkunn hjá Brynjólfi fyrir þetta.
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Stefnum á það