image

image

image

Eva Hrund Einarsdóttir

Nafn:
Eva Hrund Einarsdóttir

Netfang:
evahrund@simnet.is

Fæðingardagur:
26.02.1977

Fjölskylduhagir:
Gift Árna Kár Torfasyni og við eigum 3 ára stelpu sem heitir Hildur Sigríður.

Bekkur í MA:
TU

Hvað er að frétta?
Það er allt gott að frétta. Er líklega sú eina sem hef alla tíð eftir MA búið á Akureyri.
Ég tók mér frí í ár eftir MA og vann sem líkamsræktarkennari í World Class. Dreif mig síðan í HA og kláraði B.S. viðskiptafræði. Vann eftir útskrift sem ráðgjafi hjá Capacent í 3 ár. Eftir miklar pælingar ákvað ég að hætta í föstu öruggu vinnunni og stofna fyrirtæki og vera minn eiginn herra. Fyrirtækið heitir EXEDRA og er tengslanet fyrir áhrifamiklar konur á Íslandi. Er núna að hefja þriðja starfsárið og allt gengið framar vonum. Hef auk þess verið að taka að mér hin og þessi verkefni, flest eitthvað tengd pólitíkinni eða Háskólanum á Akureyri.
Annars kemst lítið annað að en vinnan fjölskyldan og vinir. Reyni þó að iðka nýja bæjarsport Akureyringa reglulega, þ.e. keilu.

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Í þriðja bekk þegar við vorum nokkur sem bjuggum til myndband um 4. bekkinga. Ógleymanlegt atriði sem var eftirlíking af dömubindaauglýsingunni góðu. Þar mátti sjá Sverri, Dodda, Örvar og fl. hlaupa um Eyjafjarðarársandana á brókinni með vasareikna á lofti.
Núnnubúninga saumaskapur - bekkjarferðirnar - slúðurstundir þar sem Örvar fór á kostum

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Já ekki spurning