Nafn:
Edda Hrönn Sveinsdóttir
Netfang:
eddaogsmari@simnet.is
Fæðingardagur:
31. okt 1977
Fjölskylduhagir:
Gifti mig honum Smára mínum 2002, tvö börn; Róbert Þormar 4. ára og Margrét Lilja 9 mánaða
Bekkur í MA:
TU
Hvað er að frétta?
hummmm tja bara allt fínt.... tók mér árs frí eftir stúdent, var hér heima á Egilsstöðum og vann á elli- og sjúkradeildinni hér. Fluttum svo í borg óttans þar sem ég lærði tannlækningar í 6 ár, útskrifaðist sem Tannlæknir 2005 og flutti daginn eftir síðasta prófið heim í sveitasæluna. Vinn bæði hér og á Seyðisfirði. Alveg dásamlegt. Annars bara eins og aðrir, vinna, heim að þrífa og hugsa um börn og mann, éta og sofa...
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum? sko... man nú ekki allt, var nú ekki alltaf til frásagnar daginn eftir, en Busavígslan er minnistæð, Anton að troða Lýsi ofan í mann á vistinni, Baywatch áhorf á kvennavistinni, Dalton bróðir í mötuneytinu, lesið undir próf úti í sólinni þegar allir voru komnir í sumarfrí nema við....,lesið undir próf í mötuneytinu, STÓLPA partýin, LMA partýin, Söngsalur, kvöldvökur á heimavistinni, vatnslagur á heimavistinni, frábær snjóallakeppni á vistinni... æ þetta var ósköp gaman
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
jamm
Blogg/vefur:
http://barnanet.is/robertogmargret