Nafn:
Áslaug Þorgeirsdóttir
Netfang:
aslaugth@gmail.com
Fæðingardagur:
30.12.1978
Fjölskylduhagir:
Í sambúð með honum Jakobi
Bekkur í MA:
F
Hvað er að frétta?
Voða lítið, kláraði arkitektinn í Kunstakademiets Arkitektskole í Kaupmannahöfn síðasta sumar og er að vinna á teiknistofu hérna á Christianshavn þar sem ég líka bý.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Tvö móment sem eru ógleymanleg, og ég var viðstödd hvorugt þeirra. Fyrri minningin er skálaferð 1C þegar Jónas Einar og Villi Jóns fóru saman í gufubaðið. Með lítinn tuskuhund og myndavélina mína. Afraksturinn er mjög svo sveitt myndaséría, nú er ég bara að bíða eftir að Villi verði frægur svo ég geti selt séð&heyrt filmuna og orðið rík.
Seinna atvikið var þegar strákarnir í 4F fóru að taka myndirnar fyrir Carminu þar sem þemað var að mig minnir nakin með hljóðfæri (what?). Seinna áttum við Þóra að klippa saman þessar myndir og hringdum heim til Gumma til að fá myndir strákanna (ólafsfirska?). Gummi var á skíðum en pabbi hans sagði að það lægju einhverjar myndir á borðinu hans, við skildum bara sækja þær. Í stuttu máli sagt voru sumar þessarar mynda ekki fyrir viðkvæmar sálir. Í dag þarf ég bara að loka augunum (eða fletta upp í myndalbúminu mínu) og ég get séð Gumma í engu nema brunaslöngunni á langagangi.
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Já, það er planið..