image

image

image

Anna María Ingþórsdóttir

Nafn:
Anna María Ingþórsdóttir

Netfang:
anna.maria@intrum.is

Fæðingardagur:
21. apríl

Fjölskylduhagir:
Í óvígðri sambúð með Brynjólfi Sveinssyni. Saman eigum við þrjú börn. Bjarklindi Ástu (1999), Bjarna Guðjón (2004) og Ingþór Bjarka (2006).

Bekkur í MA:
VX

Hvað er að frétta?
Við búum á Akureyri og höfum gert það síðustu sjö árin. Ég fór í Háskólann á Akureyri og tók þar viðskiptafræði. Eftir útskrift byrjaði ég á því að taka eitt ár í fæðingarorlof. Ég byrjaði svo að vinna hjá Intrum í byrjun árs 2005 og er viðskiptastjóri þar.

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Sáðfrumurnar hennar Beggu sem voru 10 mm á lengd.

Þegar Begga kastaði tómat í töfluna hjá Jónasi efnafræðikennara.

Færeyjaferðin góða þar sem við hittum Evu í Stórusofu og fleiri frábæra krakka. Lærðum að syngja Aldrig ræddist ég taran i sjonum....., fengum skerpukjöt og margt fleira dásamlega gott. Kristín skipulagði ferðina og missti næstum af henni. Hún ætlaði að mæta daginn eftir. Við mættum á rútunni fyrir utan húsið hjá henni og drógum hana fram úr rúminu. Ég man ekki hvort hún var búin að pakka, en hún komst með.

Mismælin hennar Örnu voru líka mörg góð: "Sátt mega þröngir sitja".
Hún vorkenndi líka alltaf aumingja Villa. Spurði okkur einu sinni af hverju við kölluðum hann alltaf Villa stelpu, henni fannst það bara ekki viðeigandi. Hún sem sagt misheyrði líka ýmislegt. Þessu var hún að velta fyrir sér í fjórða bekk. Búin að halda þessu fram í þrjú ár. Vilhjálmur Stefánsson var náttúrulega bara kallaður Villi Stebba.

Frábærir leikfimistímar hjá Óla. Píp-test og fleira skemtilegt.


Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Klárlega