Nafn:
Aðalheiður Reynisdóttir
Netfang:
alla.reynis@gmail.com
Fæðingardagur:
7. nóvember 1978
Fjölskylduhagir:
Giftist honum Þórði í febrúar 2002.
Við eigum tvö börn, Gísla Má (2005) og Hörpu Hrönn (2007).
Bekkur í MA:
AB
Hvað er að frétta?
Bara allt ljómandi fínt.
Eftir að hafa unnið aðeins í Sundlaug Akureyrar eftir útskrift skellti ég mér í sálfræði í Hí en fannst það með eindæmum leiðinlegt svo ég fór bara aftur norður.
Útskrifaðist sem iðjuþjálfi frá HA vorið 2004.
Fór að vinna sem iðjuþjálfi í Síðuskóla og vann þar í 2 vetur með fæðingarorlofspásu.
Núna er ég bara heima með dótturina og bíð eftir að finna draumadjobbið...
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Heimspekitíminn hjá SÓ sem var rétt fyrir árshátíðina í 4 bekk. Við vorum bara ekki að nenna að vera í tíma svo við gerðum heiðarlega tilraun til að losna. Kallinn var nú ekki alveg að kaupa það að við þyrftum 5 klukkutíma til þess að hafa okkur til fyrir árshátíð svo Særún spurði hvort hann hefði einhverntíma klætt sig í upphlut...
*Ferðin til Mexíkó
*Ostaslaufur, kók, nammi... í hvert mál
*Bjórkúturinn sem var keyptur fyrir bekkjarpartý - og innihaldið var pilsner
*Frönskutímarnir hjá Sperlu
og svo margt fleira...
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Hugsa það bara
Blogg/vefur:
www.gislimarogharpahronn.barnaland.is