Nafn:
Vilhjálmur Stefánsson
Netfang:
farbrorwilly@gmail.com
Fæðingardagur:
31.10.1978
Fjölskylduhagir:
Í sambandi. Á einnig sambýlismann.
Bekkur í MA:
VX
Hvað er að frétta?
Malbikaði og mokaði snjó (með handafli) í einn vetur eftir útskrift. Eyddi síðan 3 árum í Svíþjóð eftir það þar sem ég lærði hugbúnaðarfræði og át kebab. Kom heim 2002 og er búinn að vera í sömu vinnu síðan þó vinnuveitandinn hafi breyst. Byrjaði hjá Fjármálalausnum (þar sem fyrir var Bjölli bekkjarbróðir), en vinn núna nokkrum nafnabreytingum og yfirtökum síðar hjá "The NASDAQ OMX Group", í sönnum anda alþjóðavæðingar.
Ég á það líka ennþá til að teikna hvali, það róar hugann.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Man nú eiginlega mest lítið. Man þó eftir að hafa haft pennaveski úr selskinni í 1. bekk og fengið nafnlausar hótanir um ofbeldi frá grænfriðungum í bekknum að launum. Man líka hvað það var gaman að sleppa við munnlega þýsku í nokkrar vikur þegar ég var með samanvíraðan kjaft. Rámar í glæstan sigur gleðidauðarokkshljómsveitarinnar OHGEATH á Stiðarvauk, hef ekki náð að toppa það síðan á tónlistarsviðinu. Minnir að ég hafi bara verið í assgoti skemmtilegum bekk, sem komst þó í nokkuð uppnám þegar okkur var blandað við X-arana, þó það hafi margt gott sprottið af því (hljómfegurri sturtusöngur og áhugaverðar landamæradeilur við Valta Hjalþórs til dæmis). Jájá, ðe memórís.
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Mjá.
Blogg/vefur:
http://krapp.blogspot.com