Nafn:
Hlynur Rafn Guðjónsson
Netfang:
hlynur.gudjonsson@glitnir.is
Fæðingardagur:
9. mars 1978
Fjölskylduhagir:
Er í sambúð með Svandísi Jónsdóttur. Það vill svo skemmtilega til að hún er úr Eyjum.
Bekkur í MA:
F
Hvað er að frétta?
Fór til Englands að vinna eftir MA þar sem ég fékk það hlutskipti að rúnta með íslenska sjóara milli pöbba, það var gott í 4 mánuði en svo vildi ég heim. Eftir smá umhugsun og vinnu í landi settist ég á skólabekk á ný við HR og lærði þar eitthvað í viðskiptum. Er í dag að vinna hjá Glitni og reyni alltaf að mæta á réttum tíma.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Það hlýtur að vera dvölin á heimavistinni í heila 4 vetur enda kynntist ég þar mörgu skemmtilegu fólki. Hinsvegar skil ég ekki hvernig ég komst sæmilega heill frá þeirri reynslu. Þá var auðvitað f-bekkurinn kostulegur og þvílíkt samansafn af ólíku fólki sem náði stundum ótrúlega vel saman. Mér er mjög minnisstætt framboð Guðmundar Freys til embættis meðstjórnanda í skólafélaginu og þá nefni ég sérstaklega ljósmyndirnar sem hann hengdi upp um alla veggi þar sem hann beraði bossann undir slagorðinu gott báðum megin. Hvar eru þessar myndir niðurkomnar í dag?
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Að sjálfsögðu