Nafn:
Auður Karen Gunnlaugsdóttir
Netfang:
audurkaren@gmail.com
Fæðingardagur:
26. febrúar 1978
Fjölskylduhagir:
Ég bý í Hafnarfirði ásamt sambýlismanni mínum sem heitir Stefán Þór. Við eigum einn son sem heitir Pétur Áki og fæddist hann 31. júlí 2007.
Bekkur í MA:
VX
Hvað er að frétta?
Eftir útskrift úr MA flutti ég til Rvk og fór ég í HÍ og útskrifaðist þaðan sem hjúkka árið 2003. Kláraði síðan kennslufræði til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi árið 2006.
Var að vinna sem skólahjúkka sl. vetur, en hef lengst af verið að vinna sem hjúkka á Slysa- og bráðadeildinni í Fossvogi og hjá Heilsuverndarstöðinni.
Er eins og stendur í fæðingarorlofi. Ætla að búa á Akureyri í sumar og vera í fæðingarorlofi vinna smá á slysadeildinni þar. Mun síðan að flytja til Kaupmannahafnar í ágúst þar sem maðurinn minn er að fara í nám. Er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvað ég mun taka mér fyrir hendur en allar góðar ábendingar eru vel þegnar.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Það sem mér fyrst dettur í hug er þegar Begga dúndraði linum og slepjulegum tómati í töfluna í efnafræðitíma hjá Jóhanni. Held ég hafi aldrei séð jafnmarga kjafstopp í einu.
Íþróttatímarnir hjá Óla þegar við áttum að vera úti að hlaupa, en tóku þess í stað lyftuna niður í Centro og skoðuðum föt þar til við sáum hina hlaupa í gegnum bæinn og slógumst þá í för með þeim.
Svo auðvitað allar skálaferðirnar í Ytri-Vík og djammið.
Væri endalaust hægt að telja upp hitt og þetta... geymi það þar til á afmælinu :0)
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Já auðvitað
Blogg/vefur:
http://www.barnanet.is/4291