image

image

image

Valdimar Víðisson

Nafn:
Valdimar Víðisson

Netfang:
valdi@grenivikurskoli.is

Fæðingardagur:
1978

Fjölskylduhagir:
Ég gifti mig í júlí 2006 henni Önnu S. Jökulsdóttir. Hún er voða sæt og frábær og allt... :). Nákvæmlega 9 mánuðum seinna eignuðumst við lítinn strák. Enda vorum við ekkert að gera neitt fyrir giftingu sko... hmmm. Svo á ég tvo fóstursyni, þeir heita Atli Freyr og Egill Örn. Já og litli heitir Víðir Jökull.

Bekkur í MA:
G

Hvað er að frétta?
Það er bara ekkert að frétta. Eða jú, eftir MA tók ég mér ársfrí frá námi og sigldi minn sjó með honum Huginn. Haustið 1999 byrjaði ég í stjórnmálafræði og var einn vetur. Skipti í kennaranám við Háskólann á Akureyri og lauk því vorið 2004. Þá um haustið tók ég við sem skólastjóri í Grenivíkurskóla og er þar enn. Ég er hálfnaður með meistaranám í stjórnun. Í haust flytjum við svo suður þar sem konan mín ætlar að klára meistaranám í sálfræði enda veitir mér ekkert af því að geta spjallað við sálfræðing svona frítt. Já og svo sleit ég samvistum við bakkus. Fannst hann frekar leiðinlegur.
Annars er bara allt fínt fyrir utan þessa upptalningu..... Af Nonna bróður er það að frétta að hann er yfirþjónn á Argentínu. Gott að koma því að.

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Það er svo margt. Veit ekki hvar á að byrja. Þorri og Jónas herbergisfélagarnir á vistinni voru eðal. Man t.d. þegar Jónas vaknaði um miðja nótt í einhverju veikindamóki og reyndi að ýta mér út úr rúminu því hann þekkti mig ekki. Man þegar Gjé bekkurinn hittist á djamminu, eða nei, ég man það nú ekki allt saman enda ekkert skrýtið. Man samt eftir að við ætluðum að hafa atriði á félagsfræðiárshátíð og við strákarnir vorum út úr heiminum klukkan 18:00 og það endaði með því að það sem átti að vera spuni varð einhver della sem endaði svo á því að Huginn stóð á nærbuxunum á sviðinu. Man eftir Castró kóla í Mexíkó sem Marinó, Hjalti, Gummi og einhver sem ég man ekki hver er sögðu að væri aðaldrykkurinn. Man eftir þegar það átti að reka mig af vist en ég kjaftaði mig inn. Man eftir að ég og Geiri vorum svo athyglissjúkir að í íslensku kusum við okkar verkefni besta verkefnið bara til þess eins að fara að kynna það í 1. bekk. Þar sungum við m.a. lagið Barn eftir Stein Steinarr og er þess flutnings minnst fyrir hversu slæmur hann var. Man eftir skálaferð með Hlín og Gunna Árna og fleira og fleira og fleira.

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Alveg pottþétt...

Blogg/vefur:
http://vidirjokull.barnaland.is