Nafn:
Guðmundur Freyr Sveinsson
Netfang:
gudmundur@vatnsendaskoli.is
Fæðingardagur:
19. júlí 1977
Fjölskylduhagir:
Valdi Víðis kynnti mig fyrir sætri busastelpu í vísindaferð í stjórnmálafræði í utanríkisráðuneytinu 16. mars árið 2000. Stelpan sú reyndist vera prestsdóttir úr Vestmannaeyjum og fyrrverandi bekkjarsystir Hlyns. Til að stytta mál mitt fór þessi stúlka aldrei heim til sín aftur. Hún var hið besta efni í eiginkonu og því giftum við okkur og eigum tvo drengi 5 ára og 1 árs. Við búum á Kársnesinu í Kópavogi.
Bekkur í MA:
F
Hvað er að frétta?
Fór í HÍ eftir MA og kláraði BA próf stjórnmálafræði og master í opinberri stjórnsýslu. Kenndi í fjóra vetur samfélagsfræði í unglingadeild Snælandsskóla í Kópavogi og tók kennsluréttindi um leið við KHÍ. Er núna aðstoðarskólastjóri í Vatnsendaskóla í Kópavogi.
Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Mér leiddist aldrei í MA þannig að það er margs að minnast. Það var svolítið gaman að glíma við G-bekkinn. Einhvern tíman náðu strákarnir í G bekknum að stela fötunum okkar þegar við vorum í leikfimi en við náðum að smúla þeirra föt með brunaslöngunni þegar þeir fóru næst í leikfimi. Sættir náðust þó þegar við Hlynur sýndum BDSM klámmynd í sálfræðitíma hjá Gunna. Í hléinu náði svo Huginn í sína menn úr G-bekknum og heilan gám af WC pappír. Síðan var svaka hópefli milli bekkjanna í frímínútum yfir öllu kláminu.
Svo var nú gaman að vera með útvarpsstöð í viku og ég hafði líka gaman af því að hengja dauðan hrafn upp í tunnu á öskudaginn. Það var verst þegar einhver fín dama í prinsessubúning kom með sveðju og hélt að hún væri að slá í ruslapoka eftir að tunnan brotnaði. Svo spíttist blóðið úr hrafninum út um allt og það leið næstum yfir prinsessuna.
Bara til að minna fólk að lokum á það hvað við erum orðin gömul og sjálfan mig á hvað maður gat nú oft verið hallærislegur, þá fannst mér mjög töff að ganga um MA með símboða í buxnasrengnum en á þeim tíma voru GSM símar ekki þekktir. Ég kunni heldur ekkert á internetið og hafði aldrei sent tölvupóst þegar við útskrifuðumst :-)
Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Ég mætti stundvíslega í alla tíma í skólanum í heil 5 ár og fer nú ekki að skrópa núna.
Blogg/vefur:
http://www.kjartansveinn.barnaland.is/