Já það er víst búið að gefa skólanum klukku svo okkur vantar hugmynd að gjöf sem árgangurinn gæti gefið skólanum. Síðast var það skjávarpi í Kvosina. Hugmyndir?
Já það er víst búið að gefa skólanum klukku svo okkur vantar hugmynd að gjöf sem árgangurinn gæti gefið skólanum. Síðast var það skjávarpi í Kvosina. Hugmyndir?
Athugasemdir (16)
Valdís:
Já, aldeilis! Ég vil í fyrsta lagi viðra þá einlægu skoðun mína að við ættum að forðast það eins og heitan eldinn að gefa skólanum enn eitt listaverkið.
Frekar finnst mér æskilegt að gefa skólanum eitthvað til að auka á vellíðan nemenda á meðan þeir eru í skólanum. Vil ég þar helst nefna Kvosina. Í henni eru ennþá sömu hörðu, köldu steinbekkirnir, þó að skólinn hafi reyndar keypt örfáar þunnar dínur sem nemendur smeygja undir sitjandann á sér, og ennþá eru bláu borðin, stólarnir og kollarnir með fínu dönsku hönnuninni sem vandlega fletja neðri kinnarnar á þeim sem nýta sér aðstöðuna. Nemendur hafa í raun enga almennilega aðstöðu til að matast í skólanum. Í könnunum hafa nemendur einmitt nefnt þetta, að þó þeim þyki vænt um Kvosina, þá er aðstaðan frekar kuldaleg.
Getum við ekki gert eitthvað til að bæta aðstöðu nemenda? Gefið sófa eða borð og stóla til að bæta í Kvosina?
13.03.08 12:25
Dagný:
Er pláss fyrir eitthvað meira af stólum/borðum í Kvosinni, bæði þegar þeim er dreift um allt og í geymslu? - af því það er varla hægt að setja neitt í stóru tröppurnar nema þá einhverja púða? -eða hvað?
Er hægt að fá einhverjar hugmyndir frá stjórn Hugins varðandi þetta?
En ég er sammála varðandi listaverkið... það þyrfti þá að vera helvíti töff.
13.03.08 22:03
Tryggvi R. Jónsson:
Já ég var akkúrat að hugsa það sama, það yrði þá að vera mjög solid geymslulausn á þessu líka. Það ættu nú að vera hæg heimatökin í stjórn Hugins hjá manni þessa dagana ;)
13.03.08 22:08
Valdi:
Eigum við ekki bara að stilla Geira og Huginn upp í kvosinni og hafa þá til sýnis, það er ágæt gjöf....
14.03.08 13:02
Guðmundur Freyr 14. F:
GOSBRUNNUR... ekki spurning. Það vantar alla reisn í skóla sem ekki á gosbrunn. Hann getur verið inni eða út, stór eða lítill, með listaverki eða ljósasjófi... það er bara framkvæmdaratriði.
Hlakka annars bara til að sjá ykkur (við gosbrunninn). ;-)
14.03.08 15:05
Eva Hrund:
Ég veit reyndar ekkert hvað skólinn á. En í fyrra gáfum við Háskólanum á Akureyri stóran flatskjá sem er á hjólagrind þannig að það er hægt að fara með hann um allan skólann. Þessi skjár er búin að nýtast rosalega vel, hvort sem er nemendum eða starfsfólki skólans.
En það getur vel verið að MA eigi eitthvað þessu líkt....
14.03.08 21:33
Valdís:
Neibb, skólinn á ekkert svoleiðis.
14.03.08 21:41
Villi Jóns:
Sammála Gumma F. Gosbrunnur er málið. Allt annað er í verkahring Menntamálaráðuneytis að skaffa.
Gosbrunnur er staður hvar nemendur hittast eftir langan dag og ræða málin. Þeir verða heldur ekki úreltir svo glatt eins og 28.8 módem, glæruvarpi og 8 mm kvikmynda projectorinn.
Veit að það er mjög praktískt að fá gefa gagnlega hluti, en það eina sem sigrar pragmatismann er rómantíkin.
V.
16.03.08 09:56
Tryggvi R. Jónsson:
Sýnist hér komin ágætis ástæða til að gera skoðanakönnun.. pragmatík eða rómantík? ;)
16.03.08 15:42
Eva Björk:
Ég kýs rómantíkina.
Myndi vilja gefa listaverk og flott væri að gefa listaverk eftir nemanda í okkar árgangi. Held að skólinn sé líka búin að fá fullt af praktískum gjöfum. Það er því spurning um hvað við viljum að skólinn eigi frá okkur. Mikil og aðkallandi þörf gæti kannski skákað góðu listaverki að mínu mati.
17.03.08 15:35
Gunnur Ósk:
Ég kýs rómantíkina.....finnst Guðmundur bekkjarbróðir minn hafa komið með ansi góða hugmynd og svo væri kannski líka tilvalið að einhvern af þessum góðu listamönnum sem eru í árgangnum til að gera eitthvað stórkostlegt listaverk handa skólanum...Kannski skúlptur sem spýtir vatni...
23.03.08 14:46
Atli Haukur:
Hvernig væri að gefa skólanum sem nýtist kennurum? Ef ég man rétt þá var aðstaða kennara ekkert sérlega skemmtileg. Við gætum kannski gefið þeim dót til þess að hafa í svokölluðu "Hugarflugsherbergi" þar sem þau geta setið og samið skemmtilegar prófspurningar eða skyndipróf.
Nememndur í dag eiga allt, hver þarf skjavarpa þegar meður getur séð þetta allt í podcasti eða með G3.
25.03.08 13:26
Tryggvi R. Jónsson:
Reyndar var ég að ræða þetta við formann nemendafélagsins um Páskana (litli frændi) og hljóðkerfið í Kvosinni er víst orðið úr sérgengið enda 10 - 12 ára gamalt. T.d. er annar af stóru hátölurunum ónýtur og fæst ekki annar til þannig að það þarf að kaupa nýtt par.
Það var gefin gjöf í fyrra í hljóðkerfið sem fór í hljóðnema sem voru víst að nýtast mjög vel m.a. fyrir leikfélagið, bæði þráðlausir og svo svona headset-style.
Það má auðvitað nota hátalara í listrænum tilgangi og mætti alltaf skreyta þá með einhverri list á hliðunum eða ofan á ef við viljum samræma praktík og rómantík...
25.03.08 13:44
Geiri:
Mér finnst að við eigum að setja nöfn allra úr árganginum í pott og draga svo eitt nafn úr pottinum. Við búum svo til stytu af þeim sem er dregin út og afhendum skólanum.
Eða við söfnum í púkk, látum Villa Jóns mála fansí pansí mynd. Borgum Villa kassa, vodka flösku, karton og notum svo afgangin til að detta í það.
Annars finnst mér gosbrunnur næst besta hugmyndin á eftir mínum.
25.03.08 14:01
Örvar:
Ég vil fá mynd af Villa frænda eða þá stóra styttu. Flottast væri að hafa styttu af Villa frænda að pissa úti í miðjum gosbrunni.
25.03.08 18:31
V. Stebba:
Áhugavert.
01.04.08 18:55