image

image

image

Bjarkey Sigurðardóttir

Nafn:
Bjarkey Sigurðardóttir

Netfang:
bjarkeysig@hotmail.com

Fæðingardagur:
5. júlí 1978

Fjölskylduhagir:
Við Guðmundur fögnuðum 10 ára sambúð okkar síðasta sumar með mögnuðu brúðkaupi (07.07.07). Eignuðumst hana Járnbrá Karítas 16. september 2004 og annað kríli ætlar að láta sjá sig í lok júlí eða svo!

Bekkur í MA:
G

Hvað er að frétta?
Bara gott sko... Er í þessum týpíska fullorðinsgír - þ.e. er búin að mennta mig eitthvað og er að koma mér vel fyrir! Ég sem sagt kláraði 8. stigið í söng vorið eftir útskrift frá MA og fór suður í framhaldsnám, lærði helling og mikið gaman. Flutti svo aftur norður og fór í kennaranámið og útskrifaðist sem grunnskólakennari 2004 og fór að kenna í Hrafnagilsskóla (gamla skólanum mínum) eftir fæðingarorlof. Breytti um starfsvettvang síðast liðið haust og vinn nú hjá henni Möggu Pálu í Hjallastefnunni, nánar tiltekið kenni ég á leikskólanum Hólmasól á Akureyri. Við Guðmundur og Járnbrá Karítas tókum fyrstu skóflustunguna af húsinu okkar 11. maí 2006 í landi foreldra minna hérna í Eyjafjarðarsveitinni og við stefnum á að flytja inn í vor ;o)

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Úff... svooo langur listi!
1.G - Nýr heimur opnast fyrir sveitapíunni, algjörlega nýr partýheimur þar sem Stólpa partý standa upp úr og frábær kórapartý hjá Ástu formanni. Með annan fótinn á vistinni, bara gaman því þá gat ég fylgst betur með stóru ástinni minni þann veturinn. Félagsfræði hjá Þorláki á Svörtuloftum!
2.G og 3.G, alltaf gaman í partýjum hjá okkur í Gjéinu, æskuvinkona mín komin í MA og því nóg að gera í fíflaskapnum í Kvosinni(eins og að slefa yfir sætum strákum og svona), söngkeppnir og fleira. Stórkostlegt útskriftarferðalag Mexíkó & Kúba þar sem mín breyddi út vængina! 4.G tvímælalaust skemmtilegasta árið í skólanum, kreisí partý með hálfkrúnurökuðu fólki, blindbyl og látum... fríkaðar kennslustundir með Gunna Árna, SÓ og Þorláki og partý með þessum dúddum um vorið - jéminn!!

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Mæti galvösk með kúluna mína!

Blogg/vefur:
http://barnaland.is/barn/22767