image

image

image

Ása Arnfríður Kristjánsdóttir

Nafn:
Ása Arnfríður Kristjánsdóttir

Netfang:
asakristjansdottir@gmail.com

Fæðingardagur:
5. september 1978

Fjölskylduhagir:
Í dágóðan tíma hef ég búið með Sigurði Tómasi Þórissyni. Við eigum saman alveg stórskemmtilegan son , hann Þóri Kolbein sem er að verða tveggja ára.

Bekkur í MA:
G

Hvað er að frétta?
Líf mitt hefur verið frekar áfallalaust hingað til. Eftir útskrift fór ég suður í lögfræði sem ég kláraði 2004. Eftir útskrift hóf ég störf á lögmannstofu og nældi mér í lögmannaréttindi. Síðustu fjögur ár hef ég gegn hárri þóknun aðstoðað fólk við að rífast og sættast, allt eftir atvikum hverju sinni.

Hvað er nú minnistæðast frá MA árunum?
Ekkert því ég er búin að blokka þessi 4 ár!!!! sem er bara grín sem minnir mig á Hólavatn. Man eftir endalaust skemmtilegum fylleríum með Gjé bekknum. 14 eintök að Sverri Hermannssyni á heyvagni, vopnuð vatnsblöðrum. Maraþon yfirheyrslur Valda kalda. HOMMA-partý. Helvítis kommúnistarnir. 4-Gjé. Þegar Arnljótur Bjarki mætti "fyllri en áfengi getur orðið" í tíma hjá Þorláki. 4-Gjé. Cuba. Caró. Kennarar eru mér ekkert sérstaklega minnistæðir en mig rámar nú eitthvað í S.Ó., Þorlák og Láru sögukennara. Diffrun og heildun. Sinus og cosinus. Raggi Bjarna og síðast en ekki síst 4-Gjé. Þetta voru svo sannanlega skemmtilegur tími og margs að minnast.

Á að mæta í 10 ára stúdentsafmælið þann 16. júní og á atburði í vikunni á undan?
Ó já, tíu villtir hestar gætu ekki haldið mig frá þessum viðburði.

Blogg/vefur:
www.thorir.barnaland.is